Áskorun Björgvins til Björgvins

Björgvin G Sigurðsson skorar í gær á kaupmenn að halda aftur af verðhækkunum. 

Nú vill þannig til að alnafni Björgvins rekur einmitt eina af stærstu verslunum landsins sem heitir Fríhöfnin í Keflavík.

Því væri nærtækt að ætla að viðskiptamaðurinn Björgvin G Sigurðsson muni hlýða ákalli alnafna síns Björgvins G Sigurðssonar viðskiptaráðherra og  halda aftur af hækkunum í ríkisbúðinni í Leifsstöð og draga til baka þær hækkanir sem þar hafa orðið. 

Sú verslun er augljóslega rekin í samkeppni við aðrar verslanir á Íslandi með forgjöf þar sem ekki þarf að greiða skatta og skyldur af ríkisrekstrinum og ætti hún því að vera aflögu fær í hinu samstillta átaki viðskiptaráðherrans.

Vonandi verður svo hægt að velta upp þeirri spurningu hvers vegna hið opinbera sinnir slíkum samkeppnisrekstri og hvaða réttlætismál það er að fella niður tolla til þeirra sem ferðast til útlanda ?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Arnar Sigurðsson

Höfundur

Arnar Sigurðsson
Arnar Sigurðsson
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (14.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 26
  • Frá upphafi: 283

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 26
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband