Gölluð vísitölumæling

Til samræmis við "ekki gera neitt" stefnu ríkisstjórnarinnar hvarflar ekki að neinum að gera athugasemd við útreikninga Hagstofu Íslands.  Marg ítrekað hefur þó verið bent á og rökstutt að hækkanir undanfarinna ára á fasteignamarkaði hafa verið stórlega ofmetnar vegna skorts á gæðaleiðréttingu.  Nú er dæminu snúið við og verðhrun sem allir eru vitni að (nema Hagstofan) er gróflega vanmetið.

Ásgeir Jónsson tekur greinilega undir áður fram komnar athugasemdir:

http://arnarsigurdsson.blog.is/blog/arnarsigurdsson/entry/539620/

Hér er svo annar pistill um aðra hlið sama máls: 

http://arnarsigurdsson.blog.is/blog/arnarsigurdsson/entry/523526/

Staðreyndin er að reiknilíkön verðlagseftirlitsfólksins geta verið gölluð en gallinn er að engin hefur eftirlit með eftirlitsfólkinu sem eðli málsins samkvæmt er tregt til að viðurkenna galla á eigin líkönum.  Gildir þá einu hvort þau eiga uppruna sinn innan Seðlabanka eða Hagstofu.


mbl.is Fjársterkir menn að kaupa húsnæði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðjón Sigþór Jensson

Visitölur eru ákaflega varhugavert fyrirbæri. Í þær eru reiknaðar oft sumt sem ekki á að skipta neinu máli, annað er að stundum hefur verð á vöru og þjónustu verið haldið niðri með stjórnvaldsákvörðunum ef hækkun mælist. Dæmi um það var gjaldskrá Hitaveitu Reykjavíkur á sínum tíma en gjaldskráin var inni í vísitöluútreikngum. Þegar Davíð verður borgarstjóri þá fékk hann í gegn mjög háar hækkanir á gjaldskránni sem ekki var til aðdraga úr dýrtíðinni, verðbólgan jókst mjög mikið og olli mörgum þungum búsifjum.

Mosi 

Guðjón Sigþór Jensson, 14.6.2008 kl. 10:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Arnar Sigurðsson

Höfundur

Arnar Sigurðsson
Arnar Sigurðsson
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 10
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 10
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband